Jafntefli í síðari leik U19 liða Íslands og Svíþjóðar
U19 lið karla mætti Svíþjóð í vináttulandsleik í Sandgerði í dag, fimmtudag, í annað sinn á þremur dögum, en liðin áttust einnig við í Grindavík síðastliðinn þriðjudag. Úrslit leiksins í dag urðu 2-2 og þótti íslenska liðið leika vel.
Matthías Vilhjálmsson kom íslenska liðinu yfir í leiknum, en Svíar svöruðu með tveimur mörkum. Pétur Mar Pétursson náði síðan að jafna metin fyrir Ísland, sem verðskuldaði í það minnst jafntefli í leiknum.
Líkt og í fyrri leiknum náði íslenska liðið vel saman, skapaði sér mörg marktækifæri og greinilegt að þarna er efnilegt lið á ferðinni.