A landslið kvenna leikur í Los Angeles
Leikstaður hefur verið ákveðinn fyrir vináttulandsleik Bandaríkjanna og Íslands, sem fram fer ytra 24. júlí næstkomandi.
Leikið verður á Home Depot Center leikvanginum í Carson í Kaliforníu, sem er á Los Angeles svæðinu og er heimavöllur LA Galaxy liðsins í MLS-deildinni (Major League Soccer).
Home Depot Center leikvangurinn var byggður árið 2003 og tekur 27.000 áhorfendur í sæti.
Ísland og Bandaríkin mætast þá í þriðja sinn á innan við einu ári, en þessi sömu lið mættust einmitt í tveimur vináttulandsleikjum í lok september í fyrra.
Leikirnir í fyrra fóru fram í Pittsburgh og Rochester og höfðu þá nýkrýndir Ólympíumeistarar Bandaríkjanna betur í báðum viðureignum, 3-4 og 0-3.
A landslið kvenna hefur alls leikið sjö sinnum gegn Bandaríkjunum, gert eitt jafntefli, en tapað sex leikjum. Liðin hafa aldrei mæst á Íslandi.