Úrslitakeppni í mótum B-liða yngri flokka
Stjórn KSÍ samþykkt á fundi sínum á þriðjudag að bæta við til reynslu í ár úrslitakeppni í mótum B-liða (og eftir atvikum annarra liða) í öllum yngri flokkum þar sem slík keppni hefur ekki verið til staðar. Fyrirkomulag og reglur um hlutgengi eru í höndum mótanefndar KSÍ og verða kynntar síðar.