KSÍ-klúbburinn 2005
Fimmtánda starfsár KSÍ-klúbbsins hefst laugardaginn 4. júní er Ungverjar sækja okkur heim.
Þrír leikir verða hér heima í sumar í undankeppninni fyrir heimsmeistaramótið í Þýskalandi 2006, þá er langt komið með að semja um vináttulandsleik sem verður 17. ágúst.
Fyrirkomulag klúbbsins verður með sama sniði og undanfarin ár, mæting á Grand Hótel Reykjavík, léttar veitingar, spjall um væntanlegan leik og heimsókn góðra gesta.
Formaður klúbbsins er Halldór Einarsson.
Leikir 2005 eru:
4. júní
Ísland – Ungverjaland
kl. 18:05
mæting kl. 15:45
8. júní
Ísland – Malta
kl. 18:05
mæting kl. 15:45
17. ágúst
Ísland - ????
3. september
Ísland – Kóatía
Árgjald 2005 er kr. 30.000,- fyrir hvern miða. Innifalið eru miðar á leiki A-liðsins og U-21 liðsins, léttar veitingar fyrir leik og í hálfleik, “galadinner” fyrir Króatíuleikinn.
Greiðslufyrirkomulag: Greiðslukort eða staðgreiðsla.
Ath: Á síðustu fjórum árum hefur klúbburinn verið fullsetinn. Ekki verður fjölgað í klúbbnum í ár og því nauðsynlegt að tilkynna þátttöku hið fyrsta til neðangreindra.
Umsjón með klúbbnum hafa:
Viðar Halldórsson sími 6976800 vidarh@emax.is
Halldór Einarsson sími 5626464 halldor@henson.is
Pálmi Jónsson sími 5102906 palmi@ksi.is