Tveir þjálfarar úrskurðaðir í tveggja mánaða leikbann
Stjórn KSÍ ákvað á fundi sínum 14. apríl að úrskurða tvo þjálfara í tveggja mánaða leikbann, þá Nóa Björnsson þjálfara Leifturs/Dalvíkur og Jón Steinar Guðmundsson þjálfara Bolungarvíkur. Báðir þjálfarar tefldu fram leikmanni í Deildabikarkeppni KSÍ sem ekki var skráður á leikskýrslu. Í báðum tilfellum stendur bannið frá 14. apríl til og með 13. júní og gildir í öllum leikjum innan vébanda KSÍ. |