• fös. 01. apr. 2005
  • Lög og reglugerðir
  • Agamál

Ólöglegir leikmenn í Deildarbikarnum

Í samræmi við lið 10.2 í hefur skrifstofa KSÍ staðfest að Saso Durasevic lék ólöglegur með Leiftri/Dalvík í leik gegn Fjarðabyggð í Deildarbikarnum föstudaginn 18. mars síðastliðinn.

Úrslitum leiksins hefur því verið breytt og þau skráð 3-0, Fjarðabyggð í vil. Einnig hefur skrifstofan staðfest að Halldór Skarphéðinsson lék ólöglegur með Bolungarvík í leik gegn Selfossi sunnudaginn 13. mars síðastliðinn. Úrslit leiksins standa þó óbreytt, 8-2 Selfossi í vil.