Meiðsli í íslenska hópnum
Jóhannes Karl Guðjónsson, Arnar Þór Viðarsson og Heiðar Helguson verða ekki með íslenska landsliðinu í vináttuleiknum gegn Ítölum í Padova næstkomandi miðvikudag. Þeir hlutu allir meiðsl í leiknum gegn Króötum á laugardag og eftir æfingu og læknisskoðun í dag, mánudag, kom í ljós að þeir verða ekki leikfærir á miðvikudag. Ólafur Ingi Skúlason og Emil Hallfreðsson koma inn í hópinn í stað hinna meiddu leikmanna. |