Undankeppni HM kvenna - Dregið í riðla í dag
Dregið verður í riðla fyrir undankeppni HM kvennalandsliða í dag, föstudaginn 18. mars, kl. 12:45 að íslenskum tíma. Í undankeppninni verður leikið í fimm riðlum og verður hver riðill skipaður fimm liðum, einu úr hverjum potti innan efsta styrkleikaflokks. Efsta lið hvers riðils kemst í úrslitakeppni HM í Kína 2007, en neðstu liðin leika aukaleiki um fall í annan styrkleikaflokk. Í dag verður einnig dregið í riðla í undankeppni EM U19 kvenna. |