Áhugaverðar tillögur fyrir þinginu
Ársþing KSÍ fer fram 12. febrúar næstkomandi á Hótel Loftleiðum í Reykjavík. Nokkrar áhugaverðar tillögur verða teknar fyrir á þinginu að venju, m.a. um framtíðarstefnu í gerð og hönnun leikvalla, fjölgun liða í 1. deild karla og breytingu á bikarkeppni KSÍ. Aðildarfélög eiga að skila kjörbréfum sínum í síðasta lagi í dag, 4. febrúar. |