Eiður Smári og Margrét Lára knattspyrnufólk ársins 2004
Leikmannaval KSÍ valdi Eið Smára Guðjohnsen og Margréti Láru Viðarsdóttur knattspyrnufólk ársins 2004 og var valið tilkynnt í móttöku á Hótel Nordica á mánudagskvöld. Hermann Hreiðarsson og Laufey Ólafsdóttir höfnuðu í öðru sæti, og Heimir Guðjónsson og Olga Færseth í þriðja. Í leikmannavali KSÍ eru aðallega fyrrverandi landsliðsmenn, þjálfarar og forystumenn í knattspyrnuhreyfingunni.