Eins marks tap í Noregi
A landslið kvenna tapaði í dag, laugardag, síðari leik sínum gegn Norðmönnum í umspili um sæti í lokakeppni EM. Norska liðið vann leikinn með tveimur mörkum gegn einu og því 9-3 samanlagt. Nína Kristinsdóttir skoraði mark Íslands í dag, jafnaði metin í síðari hálfleik. Eins og tölurnar gefa til kynna lék íslenska liðið lék mun betur í Osló í dag en í fyrri leiknum, sem fram fór í Egilshöll í Reykjavík. |