Byrjunarlið Íslands gegn Noregi
Helena Ólafsdóttir, þjálfari A landsliðs kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands fyrir leikinn gegn Norðmönnum í umspili um sæti í lokakeppni EM. Liðin mætast í Egilshöll kl. 17:00 á miðvikudag. Lið Íslands er þannig skipað (4-4-2): Þóra B. Helgadóttir í markinu, Íris Andrésdóttir og Ásta Árnadóttir bakverðir, Erla Hendriksdóttir og Guðlaug Jónsdóttir miðverðir. Á köntunum eru Margrét Lára Viðarsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir, Edda Garðarsdóttir og Katrín Jónsdóttir á miðjunni. Fremst er Olga Færseth og aðeins fyrir aftan hana leikur Laufey Ólafsdóttir. |