Heilsu- og hvatningardagar í Smáralind
Stúlkur úr kvennalandsliðum Íslands munu leika listir sínar í Vetrargarði Smáralindar laugardaginn 16. október næstkomandi á milli klukkan 14:00 og 16:00. Stúlkurnar munu gefa veggspjöld, veita eiginhandaráritanir og gefa börnum færi á að reyna skothittni sína. Þá munu þær leika sér í fótbolta með börnunum og setja upp knattþrautir. KSÍ hvetur alla til að kíkja í Vetrargarðinn í Smáralind á laugardaginn og taka börnin með.