Klara eftirlitsmaður í Póllandi
Klara Bjartmarz, skrifstofustjóri KSÍ, er eftirlitsmaður UEFA í 9. riðli í undankeppni EM U19 kvennalandsliða, sem fram fer í nágrenni Kraká í Póllandi. Í riðlinum eru Pólland, Belgía, Króatía og Færeyjar. Keppni í riðlinum hófst á þriðjudag og fer lokaumferðin fram á laugardag. |