A kvenna mætir Bandaríkjunum á laugardag
Ísland mætir Ólympíumeistaraliði Bandaríkjanna á laugardag í fyrri vináttuleiknum af tveimur, en liðin mætast aftur í Pittsburgh á miðvikudag. Uppselt er á leikinn á laugardag, sem fer fram á Frontier Field leikvanginum í Rochester og hefst kl. 23:30 að íslenskum tíma. Frontier Field tekur 12.000 manns í sæti. Leikirnir tveir eru liður í hátíðahöldum bandaríska liðsins eftir sigurinn á Ólympíuleikunum í Aþenu í sumar. Ísland hefur fimm sinnum áður mætt bandaríska liðinu og einu sinni gert jafntefli en tapað fjórum sinnum. |