Íslandsleikar Special Olympics
Áttundu Íslandsleikar Special Olympics í knattspyrnu voru haldnir á íþróttavellinum á Selfossi laugardaginn 11. september síðastliðinn, en þessir leikar eru samvinna ÍF og KSÍ. Þetta voru fjórðu leikarnir sem haldnir eru utanhúss. Áður hafa verið haldnir utanhúss leikar á Akureyri, Akranesi og í Hafnarfirði. Innanhúss leikarnir hafa að jafnaði verið haldnir í mars eða byrjun apríl og verið í tengslum við knattspyrnuviku þroskaheftra í Evrópu sem nýtur mikils stuðnings Knattspyrnusambands Evrópu, UEFA. |