Tvær breytingar á byrjunarliði Íslands
Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, þjálfarar A landsliðs karla, hafa gert tvær breytingar á byrjunarliði Íslands fyrir leikinn gegn Ungverjum í undankeppni HM 2006 í Búdapest í kvöld. Arnar Þór Viðarsson kemur inn í liðið í stað Brynjars Björns Gunnarssonar, sem er í leikbanni, og Jóhannes Karl Guðjónsson kemur í stað Gylfa Einarssonar. Lið Íslands er þannig skipað (3-5-2): Árni verður í markinu, Kristján Örn, Ólafur Örn og Hermann í vörninni, Þórður og Indriði á köntunum, Arnar Þór djúpur á miðjunni og Arnar G. og Jóhannes Karl fyrir framan hann, Heiðar og Eiður Smári frammi. Leikurinn hefst kl. 19:15 að íslenskum tíma og er í beinni útsendingu á Sýn. |