Sigurmark Ungverja í blálokin
U21 landslið karla tapaði fyrir Ungverjalandi í dag með einu marki gegn engu í undankeppni EM, en leikið var í Dunaujvaros í Ungverjalandi. Sigurmark Ungverja kom á lokamínútu leiksins. Íslendingar misstu mann af leikvelli með tvö gul spjöld eftir aðeins 17. mínútur og áttu í vök að verjast þar til einum Ungverjanum var vikið af leikvelli eftir klukkutíma leik. Leikurinn jafnaðist eftir það, en eins og fyrr greinir náðu heimamenn að skora sigurmarkið alveg í blálokin. |