Byrjunarlið U21 gegn Búlgaríu
U21 landslið karla leikur gegn Búlgaríu í undankeppni EM á Víkingsvelli kl. 17:00 í dag. Eyjólfur Sverrisson hefur valið byrjunarlið Íslands. Leikaðferðin er 4-4-2: Bjarni er í markinu, Steinþór og Gunnar Þór bakverðir, Sverrir og Sölvi miðverðir. Emil og Viktor eru á köntunum, Davíð Þór og Ólafur Ingi inni á miðjunni. Hannes og Hörður eru fremstir. |