Dómarar frá Lúxemborg og Norður-Írlandi
Dómararnir í viðureign Íslands og Búlgaríu í undankeppni HM 2006 koma frá Lúxemborg. Dómari er Alain Hamer, aðstoðardómarar eru þeir Henri Reuter og Luc Nober, og varadómari er Robert Johnsdorf. Eftirlitsmaður er Trygve Borno frá Noregi og Mario Van Der Ende er dómaraeftirlitsmaður. Dómararnir á EM U21 leik sömu þjóða á Víkingsvelli á föstudag koma frá Norður-Írlandi. Adrian McCourt dæmir leikinn, aðstoðardómarar eru Eamonn Shanks og John McDowell, og varadómari er Alan Black. Dómaraeftirlitsmaðurinn í A-landsleiknum er eftirlitsmaður á U21 leiknum, Hollendingurinn Mario Van Der Ende. |