Tveir leikir gegn Ólympíumeisturunum
Seint á fimmtudagskvöld, sama kvöld og kvennalandslið Bandaríkjanna tryggði sér sigur á Ólympíuleikunum, var gengið frá því að liðið myndi leika tvo vináttuleiki gegn íslenska landsliðinu seinnipart septembermánaðar, báða í Bandaríkjunum. Leikirnir verða hluti af hátíðarhöldum bandaríska liðsins vegna árangursins á Ólympíuleikunum og væntanlega kveðjuleikir Miu Hamm og nokkurra annarra eldri leikmanna liðsins.