Landsliðshópur Búlgaríu
Hristo Stoichkov, landsliðsþjálfari Búlgaríu, hefur valið hópinn fyrir leikinn gegn Íslendingum í undankeppni HM 2006 á Laugardalsvellinum 4. september. Stoichkov, sem lék um árabil með Barcelona á Spáni og er knattspyrnuáhugafólki að góðu kunnur, tók við búlgarska liðinu eftir EM í Portúgal. Leikurinn gegn Íslandi er fyrsti "alvöru" leikur Búlgara undir hans stjórn. |