20 manna hópur tilkynntur
Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson hafa tilkynnt 20 manna landsliðshóp fyrir vináttulandsleikinn gegn Ítölum á Laugardalsvelli 18. ágúst næstkomandi. Síðastliðinn mánudag var 22 manna hópur valinn og var ætlunin að skera hann niður í átján, en nú hefur verið ákveðið að velja 20 leikmenn.