U17 karla mætir Skotum í dag
U17 landslið karla mætir Skotum á Norðurlandamótinu í dag klukkan 15:30 að íslenskum tíma. Íslendingar eru efstir á markatölu í riðlinum fyrir leiki dagsins, en öll liðin eru með 3 stig eftir tvo leiki. Lúkas Kostic, þjálfari íslenska liðsins, hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinn í dag.