U17 karla - NM í Finnlandi í ágúst
U17 landslið karla tekur þátt í Norðurlandamóti í Finnlandi í byrjun ágúst. Lúkas Kostic, þjálfari liðsins, hefur valið leikmannahópinn fyrir mótið. Fjórir leikmenn í hópnum leika með erlendum félagsliðum. Ísland er í riðli með heimamönnum, Norðmönnum og Skotum.