• mán. 05. júl. 2004
  • Fræðsla

Stjörnulið KSÍ mætir Götuhernaðinum

Miðvikudaginn 7. júlí fer fram kappleikur milli Stjörnuliðs KSÍ og Götuhernaðarins. Stjörnulið KSÍ er skipað þekktum núverandi og fyrrverandi knattspyrnumönnum og -konum, en lið Götuhernaðarins er skipað hreyfihömluðum einstaklingum og aðstoðarfólki þeirra. Stjörnuliðið fær að kynnast aðstæðum hreyfihamlaðra með því að notast við ýmis hjálpartæki í leiknum á borð við hjólastóla, göngugrindur og hækjur. Leikurinn fer fram í íþróttahúsi ÍFR og hefst kl. 15:30.

Fréttatilkynning