Viltu taka þátt í skemmtilegu verkefni?
KSÍ heldur Norðurlandamót U21 kvennalandsliða á Norðurlandi 22. júlí - 29. júlí næstkomandi. Þátt taka, auk Íslands, lið Þýskalands, Bandaríkjanna, Englands, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar.
KSÍ leitar nú eftir sjálfboðaliðum til að starfa við mótið, á Sauðárkróki og Akureyri, m.a. til að fylgja þátttökuþjóðum í leiki og á æfingar. Til greina koma störf við allt mótið eða hluta þess. Viðkomandi þurfa einungis að hafa áhuga á knattspyrnu og því að taka þátt í skemmtilegu og gefandi verkefni. Áhugasamir aðilar eru eindregið hvattir til að hafa samband við skrifstofu KSÍ.