Fjölni dæmdur sigur gegn ÍR
Dómstóll KSÍ hefur tekið fyrir kæru vegna leiks Fjölnis og ÍR í Reykjavíkurmóti B-liða 3. flokks karla, sem fram fór 7. apríl síðastliðinn. Fjölnir kærði leikinn á þeim forsendum að lið ÍR hafi verið ólöglega skipað. Dómstóll KSÍ féllst á kröfur kæranda og dæmdi Fjölni 3-0 sigur. Smellið hér að neðan til að skoða málið nánar.