A kvenna - 25 manna undirbúningshópur
Helena Ólafsdóttir landsliðsþjálfari hefur tilkynnt 25 manna undirbúningshóp fyrir landsleikina gegn Englandi, Ungverjalandi og Frakklandi í vor. Sextán leikmenn verða valdir í landsliðshópinn sem fer til Englands, en 18 leikmenn taka þátt í leikjunum gegn Ungverjalandi og Frakklandi. Hópurinn gegn Englandi verður tilkynntur í næstu viku.