Breytingar á reglugerðum KSÍ
Stjórn KSÍ samþykkti á fundi sínum 15. apríl ýmis ákvæði og breytingar á reglugerðum KSÍ um knattspyrnumót. Um er að ræða minniháttar breytingar, en þó er sérstaklega vakin athygli á breytingum á úrslitakeppni 3. deildar karla og 1. deildar kvenna, auk þess sem tekin er upp svæðisbundin úrslitakeppni í Polla- og Hnátumótum KSÍ.