• fös. 23. apr. 2004
  • Landslið

U19 kvenna - Byrjunarliðið gegn Þýskalandi

Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari U19 landsliðs kvenna, hefur tilkynnt byrjunarlið sitt gegn Þýskalandi í milliriðli EM, en leikurinn fer fram kl. 10:00 að íslenskum tíma á laugardag. Ólafur tefldi fram sama byrjunarliði í fyrstu tveimur leikjum liðsins, en gerir tvær breytingar fyrir lokaleikinn, hreinan úrslitaleik gegn gríðarlega sterku liði Þjóðverja. Sif Atladóttir og Regína Árnadóttir koma inn í byrjunarliðið í staðinn fyrir Dagmar Arnardóttur og Hallberu Gísladóttir.