Landsdómararáðstefna KSÍ 2004
Hin árlega landsdómararáðstefna KSÍ verður að þessu sinni haldin á Selfossi dagana 23. - 25. apríl. Þátttakendur verða þeir sem dæma leiki í öllum þremur landsdeildum karla og í Landsbankadeild kvenna. Meðal annars mun David Elleray, hinn heimskunni enski dómari, flytja fyrirlestra á ráðstefnunni.