• mið. 14. apr. 2004
  • Landslið

Styrkleikalisti FIFA

Ísland fellur um tvö sæti á styrkleikalista FIFA, sem gefinn var út í dag, og er nú í 60. sæti. Engar breytingar eru á efstu þremur sætum listans, Brasilíumenn eru efstir sem fyrr, Frakkar í öðru sæti og Spánverjar í því þriðja. Eina breytingin á topp 5 er að Mexíkó kemst upp fyrir Holland í 4. sætið.