• sun. 28. mar. 2004
  • Landslið

U17 karla - Lokaumferðin í dag

Lokaumferð milliriðils U17 karla fer fram í dag, en leikið er í Sheffield á Englandi. Ísland mætir Armeníu og í hinum leiknum leika England og Noregur. Efsta lið riðilsins fer áfram í úrslitakeppni EM.

Byrjunarlið Íslands

Markvörður: Elvar Þór Alfreðsson.

Aðrir leikmenn: Ari Freyr Skúlason, Heimir Einarsson, Arnaldur Smári Stefánsson (fyrirliði), Bjarki Már Sigvaldason, Bjarni Þór Viðarsson, Rúrik Gíslason, Pétur Örn Gíslason, Arnar Már Guðjónsson, Heiðar Geir Júlíusson og Kristján Ari Halldórsson (Guðmann Þórisson er í leikbanni vegna tveggja gulra spjalda, en aðrir leikmenn eru á varamannabekknum).