• mið. 24. mar. 2004
  • Landslið

FIFA-listi kvennalandsliða

Ísland er í 17. sæti á styrkleikalista FIFA fyrir kvennalandslið, sem gefinn var út í síðustu viku, og er í 10. sæti ef einungis er tekið tillit til Evrópuþjóða. Athyglisvert er að fjórar efstu þjóðirnar á listanum taka allar þátt í Opna Norðurlandamóti U21 landsliða kvenna, sem fram fer á Íslandi í júlí, og allar 8 þjóðirnar á NM U21 eru meðal þeirra 20 efstu.