Útileikir A landsliðs karla á Sýn
Sjónvarpsstöðin Sýn tilkynnti í hádeginu í dag, þriðjudag, að stöðin hafi tryggt sér sýningaréttinn á öllum útileikjum A landsliðs karla í undankeppni HM 2006 í Þýskalandi. Að auki hefur Sýn tryggt sér sýningarrétt á æfingamótinu í Manchester í sumar þar sem Íslendingar leika gegn Japönum 30. maí og Englendingum 5. júní, sem og vináttulandsleikjum gegn Albaníu 31. mars og Lettlandi 28. apríl. Alls verða því a.m.k. sex landsleikir í beinni útsendingu á Sýn á þessu ári: Vináttuleikirnir tveir, æfingamótið í Manchester og tveir leikir í undankeppni HM 2006, Ungverjaland - Ísland 8. september og Malta - Ísland 9. október.