U17 karla - 18 manna hópur valinn
Lúkas Kostic, þjálfari U17 landsliðs karla, hefur valið 18 leikmenn til að leika fyrir hönd Íslands í milliriðli EM sem fer fram í nágrenni Sheffield á Englandi 24. ? 28. mars næstkomandi. Í riðlinum ásamt Íslandi og Englandi eru Armenía og Noregur. Efsta lið milliriðilsins fer áfram í lokakeppni EM.