• fös. 12. mar. 2004
  • Landslið

Úrval-Útsýn sér um miðasölu á England - Ísland

KSÍ hefur samið við Úrval-Útsýn í Smáranum um að sjá um miðasölu á landsleik Englands og Íslands sem fram fer í Manchester 5. júní næstkomandi. KSÍ hefur fengið úthlutað 4.200 miðum fyrir aftan syðra mark vallarins fyrir stuðningsmenn íslenska landsliðsins. Miðaverð er kr. 3.750. Pantanir sendist til smarinn@uu.is og nauðsynlegt er að nafn og kennitala fylgi pöntun á hverjum miða. Nánari upplýsingar um miðasöluna má finna á www.urvalutsyn.is. Ferðaaðilar sem skipuleggja flugferðir með hópa geta snúið sér beint til KSÍ (ragga@ksi.is).