Fyrri viðureignir Íslands og Skotlands
A kvennalandslið Íslands og Skotlands hafa mæst fjórum sinnum áður, tvisvar sinnum í vináttulandsleikjum og tvisvar í undankeppni EM. Skotland sigraði í fyrstu viðureigninni, sem var jafnframt fyrsti kvennalandsleikur Íslands, í öðrum leiknum gerðu liðin markalaust jafntefli, en í síðustu tveimur viðureignum hefur Ísland haft betur. Liðin mættust síðast fyrir 10 árum síðan, en í liðinu þá voru núverandi landsliðsfyrirliði, Ásthildur Helgadóttir, og núverandi landsliðsþjálfari, Helena Ólafsdóttir.