• fös. 05. mar. 2004
  • Landslið

KSÍ fær 4.200 miða á England - Ísland

Enska knattspyrnusambandið hefur í dag tilkynnt KSÍ að það hafi tekið frá allt að 4.200 miða fyrir stuðningsmenn íslenska landsliðsins þegar Ísland og England mætast á City of Manchester Stadium 5. júní næstkomandi. KSÍ hafa borist fjölmargar fyrirspurnir um miða á leikinn og er ljóst að margir Íslendingar hyggjast leggja land undir fót. Íslensku stuðningsmennirnir verða staðsettir fyrir aftan syðra mark vallarins (sjá yfirlitsmynd). Nánari upplýsingar um fyrirkomulag miðasölu er að vænta í næstu viku.

Yfirlitsmynd