U19 kvenna - Milliriðill EM
Leiktímar hafa verið staðfestir í milliriðli Íslands í undankeppni EM U19 kvenna, en riðillinn fer fram í Póllandi dagana 20. - 24. apríl næstkomandi. Í riðlinum, auk Íslands og Póllands, eru Þýskaland og Ungverjaland. Íslenska liðið lék í undanriðli í Slóvakíu í október síðastliðnum og komst upp úr honum ásamt gestgjöfunum.