• þri. 24. feb. 2004
  • Leyfiskerfi

UEFA skoðar leyfiskerfi KSÍ

Í síðustu viku var stödd hér á landi sendinefnd frá UEFA í þeim tilgangi að skoða leyfiskerfi KSÍ. Fulltrúar UEFA komu hingað til lands í október síðastliðnum til að skoða uppsetningu leyfiskerfisins hjá Knattspyrnusambandinu sjálfu, en nú voru skoðuð þau gögn sem félögin í Landsbankadeild hafa sent inn með umsóknum sínum um þátttökuleyfi, auk þess sem öll aðstaða þriggja félaga var skoðuð. Skoðunin gekk vel fyrir sig og ljóst að uppsetning leyfiskerfis KSÍ gengur vel, en þó þarf að gera ákveðnar úrbætur sem ráðist verður í næstu daga.

Á myndinni hér til hliðar má sjá (frá vinstri) Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóra KSÍ, Andrea Traverso og Lukas Achermann frá UEFA, og Ómar Smárason, leyfisstjóra KSÍ.