EM U17 og U19 karla - Leikstaðir og leikdagar
Samið hefur verið um leikstaði og leikdaga í undankeppnum EM U17 og U19 landsliða karla. U17 liðið er í riðli með Þjóðverjum, Írum og Litháum, og fer hann fram í Þýskalandi 30. september ? 4. október. U19 liðið leikur í Noregi 2. ? 6. október, og er í riðli með Norðmönnum, Austurríkismönnum og Búlgörum.