• þri. 27. jan. 2004
  • Landslið

Undankeppni HM 2006 - Leikdagar ákveðnir í dag

Í dag fer fram fundur þjóðanna í 8. riðli undankeppni HM 2006, þar sem ákveðin verður niðurröðun og leikdagar. Fundurinn fer fram á Möltu og eru fulltrúar KSÍ þeir Eggert Magnússon, formaður, Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri, og Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsþjálfari. Niðurstöður fundarins verða kynntar hér á ksi.is um leið og þær liggja fyrir.