EM U17 og U19 karla - Dregið í riðla
Fimmtudaginn 29. janúar næstkomandi verður dregið í riðla í fyrstu umferð í Evrópukeppnum U17 og U19 landsliða karla 2004/2005. Drátturinn er í tengslum við unglingaráðstefnu UEFA sem fer fram í Berlín. U17 landsliðið verður í efri styrkleikaflokki (er í 26. sæti) en U19 landsliðið verður í neðri styrkleikaflokki (er í 33. sæti). Drátturinn hefst klukkan 16:15 að íslenskum tíma.