• mán. 19. jan. 2004
  • Fræðsla

UEFA B próf á laugardaginn

KSÍ minnir þjálfara á UEFA B prófið á laugardaginn, en nauðsynlegt er að skrá sig í prófið hjá fræðslustjóra KSÍ (siggi@ksi.is). Boðið verður upp á að taka prófið í Reykjavík og á Akureyri. Eftirfarandi upplýsingar þurfa að koma fram við skráningu: Nafn, kennitala, heimilisfang, póstnúmer, netfang, GSM sími og fæðingarstaður, ásamt passamynd (helst á tölvutæku formi). Þessar upplýsingar eru nauðsynlegar til að geta fengið þjálfaraskírteinið, sem verður væntanlega tilbúið í febrúar. D og E stigs þjálfarar þurfa að senda sömu upplýsingar til að geta fengið þjálfaraskírteinið sitt. Nánari upplýsingar veitir fræðslustjóri.