Æfingaáætlun yngri landsliða
Æfingaáætlun fyrir landsliðsæfingar yngri landslið karla og kvenna er tilbúin. Áætlunin gildir fram á vor og er fyrir U19 karla, U19 kvenna, U17 karla (tvö lið), U17 kvenna og U16 karla. Tvö þessara liða taka þátt í milliriðlum Evrópukeppnirnar nú í vor (U17 karla og U19 kvenna) og eru því æfingarnar heldur fleiri nú en áður.
Æfingaáætlunina má finna í valmyndinni hér til vinstri undir Mótamál / Mót / Viðkomandi lið.