• mið. 17. des. 2003
  • Landslið

Styrkleikalistar FIFA

FIFA gaf út styrkleikalista fyrir bæði karla- og kvennalandslið í vikunni. Ísland hækkar um tvö sæti á styrkleikalista FIFA fyrir karlalandslið, er nú í 58. sæti, en kvennalandsliðið er í sama sæti og áður, því 17. Styrkleikalistinn fyrir karlalandslið er gefinn út mánaðarlega, en næsti styrkleikalisti FIFA fyrir kvennalandslið verður gefinn út í mars 2004.