• þri. 09. des. 2003
  • Landslið

Norðurlandamót U17 karla 2004-2006

Breyting hefur verið gerð á mótshöldurum Norðurlandamóts U17 karla næstu þrjú árin að ósk finnska knattspyrnusambandsins. Finnar áttu að halda mótið 2004 en hafa tekið að sér að halda úrslitakeppni Evrópumóts U19 landsliða kvenna það ár. Færeyingar halda því NM á næsta ári, Finnar 2005 og Ísland 2006, eða ári síðar en áður var áætlað.