Byrjunarliðið gegn Mexíkó
Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, þjálfarar A-landsliðs karla, hafa valið byrjunarlið Íslands gegn Mexíkó. Leikurinn fer fram í San Francisco kl. 04.00 í nótt að íslenskum tíma.
Lið Íslands (3-5-2)
Markvörður: Árni Gautur Arason (fyrirliði).
Varnarmenn: Bjarni Þorsteinsson, Ólafur Örn Bjarnason og Kristján Örn Sigurðsson
Tengiliðir: Auðun Helgason, Gylfi Einarsson, Ólafur Stígsson, Veigar Páll Gunnarsson og Hjálmar Jónsson
Framherjar: Helgi Sigurðsson og Ríkharður Daðason